Pálsvaka er árlegur viðburður að vori í Hannesarholti í samstarfi við Siðfræðistofnun til að heiðra minningu Páls Skúlasonar heimspekings. Markmiðið er að skapa vettvang fyrir umræður um málefni sem tengjast heimspeki og samfélagi.
Pálsvaka 2018 fór fram í Hannesarholti, laugardaginn 21. apríl 2018 og bar yfirskriftina "Hvert er erindi umhverfisheimspekinnar við Íslendinga?"
Viðfangsefnið var sá heimspeki- og siðfræðilegi skilningur sem liggur til grundvallar umgengni okkar við náttúruna og afstöðuna til hennar. Undanfarið hefur umræða um náttúruna, verndun hennar, nýtingu og merkingu aukist í samfélaginu. Mikilvægt er að sú umræða eigi sér traustar fræðilegar stoðir. Í verkum Páls má finna mikilvæga leiðsögn í þeim efnum.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson - Ávarp
Jón Ásgeir Kalmansson - Að rækta eða glata samúðargáfunni – inngangserindi um náttúruhugsun Páls Skúlasonar
Skúli Skúlason - Fjölbreytni og tengsl í náttúrunni – mikilvægi heimsmyndar
Róbert H. Haraldsson - Samvistarhyggja – heimspekileg hugleiðing um guði, mannfólk og dýr
Oddný Eir Ævarsdóttir - Brjáluð auðn – um táknmyndir, tengsl og trúnað í náttúrupælingum meistara Páls og lærisveina
Guðbjörg R. Jóhannesdóttir - Fyrirbærafræði og fagurfræði umhverfis og náttúru (eða landslags)
Þorvarður Árnason - Græn stjórnmál, gráa höndin og landslag umhverfismála á Íslandi
Mikael Karlsson - Lokaorð