Hugsað með Mill
Þess var víða minnst árið 2006 að tvöhundruð ár voru liðin frá fæðingu heimspekingsins Johns Stuart Mill.
Íslenskir heimspekingar minntust afmælisins með málþingum bæði í Reykjavík og á Akureyri.
Í Hugsað með Mill er að finna 10 ritgerðir sem byggðar eru á erindum sem haldin voru á málþingunum.
Óhætt er að fullyrða að Mill hafi haft mikil áhrif á íslenska heimspeki og stjórnmálaumræðu hér á landi. Þegar á 19. öld var Mill lesinn af forystumönnum íslensks samfélags og verk hans kynnt íslenskum lesendum.
Í Hugsað með Mill er meðal annars að finna greinar um efni þessara bóka og eru höfundar þau:
- Guðmundur Heiðar Frímannsson
- Gunnar Harðarson
- Kristján Kristjánsson
- Mikael M. Karlsson
- Róbert H. Haraldsson
- Salvör Nordal
- Sigríður Þorgeirsdóttir
- Sigurður Kristinsson
- Svavar Hrafn Svavarsson
- Vilhjálmur Árnason
Ritstjórar: Salvör Nordal, Róbert H. Haraldsson og Vilhjálmur Árnason
Útgáfuár: 2007 | Blaðsíðufjöldi: 166 | ISBN: 9979547723
Image