Hugsmíðar. Um siðferði stjórnmál og samfélag
Hugsmíðar eru safn ritgerða eftir Vilhjálm Árnason, prófessor í heimspeki, á mörkum siðfræði og stjórnmálaheimspeki.
Vilhjálmur reifar hugmyndir sínar um brýnustu verkefni siðfræðinnar á okkar tímum, ræðir um vanda og verkefni lýðræðisins og greinir nokkur siðferðileg úrlausnarefni samtímans þar sem spurningar um einstaklingsfrelsi og félagslegt réttlæti eru í fyrirrúmi.
Flest viðfangsefnin eru sprottin úr íslensku samfélagi og höfundur færir rök fyrir því að við séum langt frá því að tileinka okkur vandaða stjórnsiði.
Meðal umfjöllunarefna bókarinnar eru:
- Listin að lifa að fornu og nýju
- Veikleikar íslensks lýðræðis í aðdraganda og eftirmálum hrunsins
- Hlutverk fræðimanna í samfélagsumræðu
- Erfðarannsóknir, lífpólitík og vísindaleg borgaravitund
- Réttur til afskipta af fíkniefnaneyslu ungmenna
- Frelsi fólks til að eignast börn
- Réttlát heilbrigðisstefna
- Ranglátt fiskveiðikerfi
Höfundur: Vilhjálmur Árnason
Útgáfuár: 2014 | Blaðsíðufjöldi: 328 | ISBN: 9935230554
Image
![Hugsmíðar. Um siðferði stjórnmál og samfélag, bókarkápa](/sites/sidfraedi.hi.is/files/styles/squared_small/public/2021-01/hugsmidar_um_sidferdi_stjornmal_og_samfelag.jpeg?h=81cfa6a1&itok=-pHtwh-x 479w, /sites/sidfraedi.hi.is/files/styles/squared_medium/public/2021-01/hugsmidar_um_sidferdi_stjornmal_og_samfelag.jpeg?h=81cfa6a1&itok=8pnNUkZY 480w, /sites/sidfraedi.hi.is/files/styles/squared_large/public/2021-01/hugsmidar_um_sidferdi_stjornmal_og_samfelag.jpeg?h=81cfa6a1&itok=EaETP8gs 768w)