Hugsað með Páli

Hugsað með Páli hefur að geyma 16 ritgerðir sem fjalla með einum eða öðrum hætti um heimspeki Páls Skúlasonar og hugðarefni. 

Hér má finna greinar um:

  • siðfræði
  • gagnrýna hugsun
  • stjórnmál
  • náttúru
  • tákn
  • hamingju  
  • kristna trú

Bókin er afrakstur Pálsstefnu, málþings sam haldið var til heiðurs Páli sextugum í Hátíðasal Háskóla Íslands 8. og 9. apríl 2005.

Páll Skúlason kenndi við heimspekiskor frá því henni var komið á fót árið 1971 og var því einn þeirra sem mótaði skorina frá upphafi og var þar mikils metinn kennari. 

Hann var skipaður prófessor árið 1975 og hafði upp frá því umsjón með kennslu í heimspekilegum forspjallsvísindum. 

Páll var afkastamikill fræðimaður og um það vitnar fjöldi útgefinna rita um fjölbreytt heimspekileg viðfangsefni. Páll var kjörinn rektor Háskóla Íslands árið 1997 og gengdi því starfi í átta ár.

Ritstjórar: Rórbert H. Haraldsson og Vilhjálmur Árnason

Útgáfuár: 2005 | Blaðsíðufjöldi: 207 | ISBN: 9979546522

Image
Páll Skúlason