Um stofnunina

Image

Stofnunin  er rannsóknar-, fræðslu- og þjónustustofnun og er meðal annars vettvangur þverfaglegs samstarfs á sviði siðfræði.

Hlutverk siðfræðistofnunar er

  • að efla og samhæfa rannsóknir í siðfræði sem unnið er að við Háskóla Íslands
  • að stuðla að samstarfi við innlenda og erlenda háskóla og aðra rannsóknaraðila á sviði siðfræði
  • að gefa út fræðirit, námsefni og kynna niðurstöður rannsókna í siðfræði
  • að veita upplýsingar og ráðgjöf um siðfræðileg efni
  • að vera tengiliður við deildir vegna námskeiða sem samið er um að þær bjóði fram sem hluta af þverfaglegu námi í siðfræði einkum til meistaraprófs
  • að treysta samvinnu milli deilda í þágu þverfaglegs náms og efla skilning á þeim hagsmunum sem náminu tengjast
  • að sinna ýmsum verkefnum sem tengjast þróunarstarfi
  • að gangast fyrir námskeiðum, ráðstefnum og fyrirlestrum um siðfræði
Stjórn og starfsfólk
Image

Elínborg Sturludóttir

Stjórnarmaður, tilnefnd af Kirkjuráði

Image

Henrý Alexander Henrýsson

Stjórnarmaður, skipaður af forseta Hugvísindasviðs

Image

Kolbrún Pálsdóttir

Stjórnarmaður, tilnefnd af Menntavísindasviði

Image

Páll Rafnar Þorsteinsson

Verkefnastjóri

Image
Haraldur Hreinsson

Haraldur Hreinsson

Stjórnarmaður, tilnefndur af Guðfræði- og trúarbragðafræðideild

Image
Mynd: Eyja Margrét Jóhönnu Brynjarsdóttir

Eyja Margrét Jóhönnu Brynjarsdóttir

formaður stjórnar

Siðfræðistofnun heyrir nú undir Hugvísindasvið og fær rekstrarfé frá sviðinu.

Einnig er mikilvægur hluti fjárhags stofnunarinnar sjálfsaflafé, það er; styrkir til sérstakra verkefna, svo sem til bókaútgáfu og ráðstefnuhalds.

Stofnunin hefur á skrá velunnara og telur sá hópur nú um 400 manns.

Velunnarar fá sent fréttabréf með upplýsingum um starfsemi stofnunarinnar, svo sem:

  • málþing
  • námskeið
  • fyrirlestra og fleira

Engin fjárútlát eða aðrar kvaðir fylgja því að vera velunnari.

Skráning velunnara getur farið fram með tölvupósti til Siðfræðistofnunar á netfangið path@hi.is

Upphaf Siðfræðistofnunar má rekja til ársins 1989 þegar Rannsóknarstofnun í siðfræði á vegum Háskóla Íslands og Þjóðkirkjunnar var komið á fót. Það voru þeir Páll Skúlason (f. 1945 - d.2015), prófessor í heimspeki og Björn Björnsson (f. 1937 - d. 2008), prófessor í guðfræði, sem áttu frumkvæði að því að stofnuninni var sett á laggirnar. Að henni stóðu heimspekiskor, guðfræðideild og Þjóðkirkjan.

Páll var formaður stjórnar Siðfræðistofnunar frá því hún var stofnuð og þar til hann var kjörinn rektor Háskóla Íslands árið 1997.

Hann hóf störf við Háskóla Íslands árið 1971 og byggði upp heimspekikennslu við Háskóla Íslands ásamt þeim Þorsteini Gylfasyni og Mikael M. Karlssyni.

Á vefsíðu Páls heitins ná nálgast heildaryfirlit yfir feril hans auk þess sem þar eru aðgengilegar greinar, útvarpsþættir og fleira eftir hann. Einnig er þar að finna greinar í minningu Páls, sem samstarfsmenn og vinir hafa ritað.