Notkun heilbrigðisupplýsinga í netheimum

Samstarfsaðilar: Háskólinn í Oxford (verkefnastjórn), Háskóli Íslands, Háskólinn í Osló, Háskólinn í Uppsölum.

Styrkur frá Nordforsk úr áætluninni Society, Integrity and Cyber-security að upphæð 1,1 milljón evra

Á síðustu árum hefur orðið til rafræn sjúkraskrá og samtengt upplýsinganet á heilbrigðissviði þar sem heilbrigðisstarfsmenn skrá gögn, deila upplýsingum og vinna saman.

Þessi rafrænu samskipti og upplýsinganet auka ekki aðeins skilvirkni og öryggi í meðferð, greiningu og umönnun sjúklinga heldur einnig möguleika á margvíslegri annarri notkun heilsufarsupplýsinga bæði innan lands og milli landa.

Það kemur því ekki á óvart að vaxandi áhugi er meðal ríkja, opinberra stofnana og einkafyrirtækja víða um heim að nýta þessar heilbrigðisupplýsingar í öðrum tilgangi.

    Image
    ""

    Heilbrigðisupplýsingar eru flokkaðar með viðkvæmustu upplýsingum um einstaklinga og því er lögð höfuðáhersla á að tryggja persónuvernd bæði hvað varðar varðveislu upplýsinganna, aðgangsstýringu og eftirlit með notkun upplýsingakerfanna.

    Í þessu rannsóknarverkefni er stuðst við þær kenningar um persónuvernd sem leggja áherslu á samhengi upplýsinganna og markmið með söfnun þeirra.

    Samkvæmt þessum hugmyndum er öll önnur notkun brot á persónuvernd og til þess fallin að draga úr trausti almennings til þeirra stofnana sem varðveita gögnin.

    Í verkefninu verða meðal annars: 

    • greind þau siðferðilegu og lagalegu viðmið sem mestu skipta við varðveislu og notkun heilbrigðisupplýsinga 
    • skoðuð sérstaklega ákveðin tilvik í hverju samstarfslandi þar sem tekist hefur verið á um notkun heilsufarsgagna 
    • afstaða almennings og hagsmunaðila til persónuverndar greind með rýnihópum 
    • og loks er ætlunin að gera tillögur um hvernig umhverfi eigi að búa þessum upplýsingum.
    Image
    ""