Réttur að deyja?

Siðfræðistofnun Háskóla Íslands boðar til málþings um dánaraðstoð fimmtudaginn 12. maí kl. 15:30 - 17:30. Kynntar verða niðurstöður nýrrar rannsóknar á viðhorfum íslenskra lækna til dánaraðstoðar auk þess sem rýnt verður í áleitnar siðferðilegar og lagalegar spurningar er varða þetta flókna viðfangsefni.

Frummælendur verða Kári Hólmar Ragnarsson, lektor við lagadeild HÍ, Salvör Nordal, heimspekingur og umboðsmaður barna og Svanur Sigurbjörnsson, læknir og MA í hagnýtri siðfræði. Að framsögum loknum mun Vilhjálmur Árnason, stjórnarformaður Siðfræðistofnunar, stýra pallborðsumræðum.

Staður og stund: Stofa N-131 í Öskju kl. 15:30 - 17:30, fimmtudaginn 12. maí.

Allar upplýsingar má finna á Facebook síðu málþingsins.