Siðfræði og samfélagsábyrgð

Álitamál eru alls staðar: í daglegu lífi og starfi, milli vina og innan fjölskyldna. Stundum eru spurningar einfaldar á yfirborðinu en vandasamt reynist að svara þeim. Vandamál sem í fyrstu virðast ekkert tengjast siðferði vekja spurningar um sanngirni, ábyrgð, skyldur og sameiginleg gæði.

Siðfræði og samfélagsábyrgð fjallar á aðgengilegan hátt um siðfræði í atvinnulífi. Hún nýtir helstu kenningar siðfræð­ innar til að sýna hvernig takast megi á við siðferðileg álita­ mál. Auk þess að kynna lesandann fyrir leiðum siðfræðinnar, skýrir höfundurinn sálfræðilega og hagfræðilega þætti sem koma við sögu í daglegum ákvörðunum.

Øyvind Kvalnes er dósent við Handelshøyskolen BI í Noregi. Hann hefur langa reynslu af ráðgjöf og stýrði um árabil heim­ spekilegri ráðgjafastofnun, Humanistisk Akademi, í Ósló. Øyvind lauk doktorsprófi í heimspeki frá Háskólanum í Ósló 1998. Hann er höfundur fjölda bóka og ritgerða um hagnýtta siðfræði og siðfræði í atvinnulífi.

Jón Ólafsson þýddi.

Image
Siðfræði og samfélagsábyrgð, bókarkápa