Siðfræðikver
Í Siðfræðikveri færir Vilhjálmur Árnason rök fyrir því að siðferðilegar rökræður séu skynsamleg leið til þess að jafna siðferðilegan ágreining.
Ennfremur sýnir hann fram á að hægt sé að rökstyðja siðferðilegar ákvarðanir með tilvísun í verðmæti og siðalögmál sem eru hafin yfir einstaklingsbundinn smekk, án þess að hafna í siðferðilegri lögmálshyggju.
Siðfræðikver kynnir fyrir lesendum hvernig þessi tvö fyrirbæri, rökræður og ákvarðanir, eru höfuðatriði í siðferðilegu lífi og að þau eru samofin.
Höfundur: Vilhjálmur Árnason
Útgáfuár: 2016 | Blaðsíðufjöldi: 100 | ISBN: 978-9935-23-137-6
Image
