Velferð barna: Gildismat og ábyrgð samfélaga
Í bókinni fjalla þrettán höfundar á sviði:
- félagsráðgjafar
- guðfræði
- heimspeki
- næringarfræði
- sálfræði og
- uppeldisfræði
um siðferðileg álitamál tengd börnum og skilyrði þess að þeim geti farnast vel.
Í brennidepli er ráðandi gildismat í neyslusamfélagi nútímans og áhrif þess á velferð barna.
Rætt er um foreldrahlutverkið, merkingu og gildi frelsis í uppeldi barna og um þá ábyrgð sem við berum sameiginlega á uppeldisskilyrðum þeirra og hvernig þau mótast.
Jafnframt er hugað að réttindum barna og líkamlegri og andlegri næringu þeirra.
Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, ritar inngangsorð.
Ritstjórar: Salvör Nordal, Sigrún Júlíusdóttir og Vilhjálmur Árnason
Útgáfuár: 2011 | Blaðsíðufjöldi: 181 | ISBN: 978-9979-54-895-9
Image
