Hugsað með Vilhjálmi

Í tilefni sextugsafmælis Vilhjálms Árnasonar í janúar 2013 var haldin viðamikil ráðstefna honum til heiðurs þar sem bæði erlendir og innlendir samstarfsmenn Vilhjálms fjölluðu um heimspeki hans og hugðarefni.

Hér er að finna 13 greinar byggðar á erindum sem haldin voru á ráðstefnunni.

Vilhjálmur Árnason hefur kennt heimspeki við Háskóla Íslands frá árinu 1982 og verið afkastamikill kennari og fræðimaður, ekki síst á sviði stjórnmálaheimspeki og siðfræði, og er vel metinn á alþjóðlegum vettvangi fyrir skrif sín um lífsiðfræði.

Bók hans Siðfræði lífs og dauða, sem kom fyrst út árið 1993, er brautryðjandaverk og hefur verið undirstaða allrar kennslu í heilbrigðis og lífsiðfræði hér á landi.

Þá gaf hann út árið 2008 yfirgripsmikið verk um helstu kenningar í siðfræði, Farsælt líf, réttlátt samfélag. Vilhjálmur hefur ætíð tekið virkan þátt í samfélagsumræðu um margvísleg siðferðileg álitaefni og lýðræði, ekki síst í kjölfar bankahrunsins en hann var formaður vinnuhóps um siðferði og starfshætti sem starfaði með rannsóknarnefnd Alþingis.

Ritstjórar: Salvör Nordal og Róbert H. Haraldsson

Útgáfuár: 2015 | Blaðsíðufjöldi: 240 | ISBN: 9935230627

Image
Vilhjálmur Árnason
 
Nýleg útgáfa Hugsað með.. Þýdd verk... ælskdjfæakds
  Hugsað með Páli    
  Hugsað með Platóni    
  Hugsað með Mill    
  Hugsað með Vilhjálmi